10.3.2008 | 02:14
Óheppni/heppni mánaðarins.
Maður sofnaði í leigubílnum hjá mér um helgina. Það var sama hvað ég öskraði í eyrun á honum og hristi hann til, hann bara vildi ekki vakna og ákvað ég að fá aðstoð lögreglunnar við að ná karlgarminum út úr bílnum sem var mjög auðsótt mál. 3 fílelfdir lögregluþjónar voru ekki lengi að redda manninum út úr bílnum og buðu honum ókeypis fylgd heim en þegar kom að því að gera upp leigubílinn byrjaði karlinn einhvern leikaraskap með VISA-kortið sem endaði að lokum með því að einn lögreglumaðurinn sótti það aftur í vasa mannsins. Ekki vildi betur til en að fullur poki af hvítu dularfullu dufti fylgdi óvart með kortinu. Maðurinn fékk í kaupbæti ókeypis gistingu á Hverfisteinium.
Um bloggið
Skumur.blog.is
Tenglar
Mínir tenglar
- TaktuTAXA Leigubílablogg
- Skúmaskot. Ýmislegt til sölu, aðallega þó bílar.
- TOtheAIRPORT Leifsstöðvarleigubílar.
Spurt er
Ætti að sæma ríkisstjórnina fálkaorðu fyrir góð störf í þágu lands og þjóðar?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 840
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ertu kannski orðinn leynilögga?
Hmmm... já ég fattaði það um leið og ég var búin að skrifa spurninguna, að auðvitað getur þú ekki sagt frá því ef að þú ert leynilögga. Þá ertu ekki lengur leyni. Ég kemst sennilega aldrei að því
Anna Viðarsdóttir, 10.3.2008 kl. 19:48
Ég er hræddur um að ég færi seint í lögguna. Það er nefnilega merkilegt hvað hefur tekist að þagga vel niður hvað það eru komnir margir dæmdir fyrrum austantjaldsmenn hingað. Allskonar morðingjar og nauðgarar eru bara velkomnir til Íslands. Lifi byggingariðnaðurinn. Er búinn að heyra margar ljótar sögur um viðskipti þessara manna við Íslendinga og að sögn margra er löggan nánast hætt að þora að mæta á svæðið ef minnst er á vopnaða austantjaldsmenn, enda margir þeirra þjálfaðir í gamla Sovíét-hernum. Og svo eru venjulegar Íslenskar húsmæður hlekkjaðar og sendar nánast öfugar heim ef þær gleyma smá formsatriði í USA. Ég er hræddur um að Bjarnason Armý verði að verða til mjög fljótlega til að allt fari ekki endanlega til fjandans.
Björgvin Kristinsson, 11.3.2008 kl. 02:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.