Komin skýring á rauðu ljósunum?

Skrifaði um það fyrir mörgum mánuðum að olíufélögin væru ábyggilega komin með puttana í stillingu umferðaljósanna, því þau voru skyndilega orðin svo vitlaust stillt að nánast þyrfti að nauðhemla við öll ljós þegar komið er að þeim, með tilheyrandi auka eldsneytiseyðslu.

Hér er slóðin á færsluna síðan í sumar: http://skumur.blog.is/blog/skumur/entry/603708/

 Og nú er skrýtið mál komið upp!!!
Maðurinn sem sér um stillingar og eftirlit með umferðarljósunum er með hundruði ef ekki þúsundir milljóna inn á bankareikningi sínum, samkvæmt frétt á visir.is í dag. Þar segir m.a.: 
"Rannsókn efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra á málefnum Friðjóns hófst eftir að ábendingar bárust um að almennur starfsmaður Orkuveitunnar, sem vinnur við eftirlit og umsjón með götuljósum, velti fleiri hundruð milljónum króna í gegn um bankareikninga sína.

Í einhverjum tilfellum munu innistæður á bankareikningum borgarstarfsmannsins hafa verið rétt tæplega einn milljarður króna."

Hér er fréttin í heild sinni:  http://www.visir.is/article/20081125/FRETTIR01/633543082/-1

Það skildi þó aldrei vera annað olíusamráðsmál að koma upp á yfirborðið???
... Það sér kannski enginn annar en ég samhengið í þessu...Tounge


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björgvin Kristinsson

Nýtt olíusamráð?

Kannski svolítið langsótt en getur verið að olíufélögin hafi verið að greiða umsjónarmanni umferðarljósanna fyrir að vanstilla þau eins og mér datt í hug s.l. sumar? Það er allavegana mjög undarleg tilviljun að umræddur aðili sé allt í einu með hundruði ef ekki þúsundir milljóna á bankareikningi sínum.
 Hér er slóð á bloggið mitt þar sem ég reyfa þessa hugmynd:
http://skumur.blog.is/blog/skumur/entry/724977/

Vinsamlegast sendið þetta áfram á aðila sem gætu hugsað sér að athuga þetta mál.

Þetta bréf er sent á helstu fréttastofur landsins:

Kveðja Skúmur.

Björgvin Kristinsson, 25.11.2008 kl. 20:54

2 Smámynd: Ragnheiður

Hehehe þetta er ljósastauraeftirlitsmaður

Hitt er held ég því að kenna að ljósadótið er allt orðið umferðarstýrt og borin von að geta ekið í einni bunu alla miklubrautina eins og var hægt.

Kenningin er samt góð !

Ragnheiður , 26.11.2008 kl. 17:41

3 Smámynd: Björgvin Kristinsson

Já. Datt fyrst í hug að senda þetta á spaugstofuna enda er þetta of gott til að vera satt....

Björgvin Kristinsson, 26.11.2008 kl. 18:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Skumur.blog.is

Höfundur

Björgvin Kristinsson
Björgvin Kristinsson

Skrifin á þessari síðu eru ekkert endilega lýsandi fyrir skoðun undirritaðs, allt eins gæti verið um að ræða drög að nýrri vísindaskáldsögu. Tilheyri enda hægri grænum sem eru ekki til í alvörunni.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Spurt er

Ætti að sæma ríkisstjórnina fálkaorðu fyrir góð störf í þágu lands og þjóðar?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

233 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband