15.12.2008 | 02:03
Munurinn á BNA og Íslandi er sá...
...að á Íslandi er valdasjúkur innheimtulögfræðingur seðlabankastjóri en kjósendur í BNA myndu aldrei samþykkja svoleiðis. Þessi seðlabankastjóri okkar er með flesta ráðherrana gjörsamlega í vasa sínum og stjórnar hann gerðum og hugsunum þeirra að eigin vild. Mikið af vinum og fjölskyldufólki hans hagnast verulega á því að almenningur komist í vanskil og Þess vegna er aukið á hörmungar almennings með öllum tiltækum ráðum hér hjá okkur með ýmsum hækkunum. Þar vega hæst stýrivextir svo þeir sem lenda í vandræðum með afborganir fái hæstu mögulegu dráttarvexti og sökkvi enn dýpra í skuldafenið, svo er það eldsneyti svo fólk sem reyni að fá lausn mála sinna á hinum og þessum stöðum klári allt í bensín, og svo er það áfengi og tóbak þannig að það taki fljótt af þegar fólk sér ekkert annað í stöðunni en að drekkja áhyggjum sínum.
Þetta er nú svona helsti munurinn á BNA og Íslandi...
...er kannski einhver með gáfulegri skýringu á þessum mun á stýrivöxtum?
Hugsanlegt met í stýrivaxtalækkun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Skumur.blog.is
Tenglar
Mínir tenglar
- TaktuTAXA Leigubílablogg
- Skúmaskot. Ýmislegt til sölu, aðallega þó bílar.
- TOtheAIRPORT Leifsstöðvarleigubílar.
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 836
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.