Stórsigur í fyrri hálfleik...

Fékk heldur betur ánægjulegar fréttir frá lögfræðingnum í gær.

Var að vinna við húsbyggingar í nokkra mánuði fyrir meira en ári hjá helvíti reffilegum húsasmíðameistara og var að spá í að leggja fyrir mig þessa iðn enda litlu við að bæta frá bílasmíðinni.

Ákvað svo einn daginn að hætta algjörlega í þessum geira enda voru allir sem komu á byggingastað yfir sig hissa að ég talaði Íslensku og svo fyllti það mælinn endanlega þegar ekkert launatengt þmt. allir launaseðlar og stór hluti af laununum sjálfum höfðu ekki borist í meira en 4 mánuði.

Þegar ég komst að því að maðurinn taldi sig skulda mér 24 krónurW00t fyrir 2 mánaða vinnu ákvað ég að hafa öll samskifti við hann skrifleg, sem sagt í gegn um tölvupóst eða SMS. Eftir mikið árangurslaust skrifræði í gegn um hin ýmsu batterý voru afrit af þessum samskiptum mínum við hann lögð fyrir héraðsdóm sem samþykkti svo í gær án athugasemda allar mínar kröfur en hafnaði aftur á móti öllum hans kröfum. En hann hafði m.a. haldið því fram að ég hefði samið um 1100 krónur á tímannShocking, heildarvinnustundir hefðu verið miklu færri en ég héldi fram og svo fór hann fram á bætur vegna skyndilegs brotthvarfs míns úr vinnu en ég var með SMS frá honum þar sem hann samþykkir að ég megi hætta strax auk annarra skeyta þar sem allt kom fram sem þurfti að koma fram.

Þetta mál hefði verið gjörtapað hjá mér ef ég hefði ekki snúið samskiptamátanum við hann upp í þessar skeytasendingar og hvet ég þá sem lesa þessar línur að gera skriflega samninga og geyma öll SMS skeyti við svona aðila enda er ekkert mál að ná þeim út úr símanum og leggja fyrir dóm ef þarf. Eins er mjög slæmt þegar engir launaseðlar eru gefnir út því þá gerir skatturinn kröfu á viðkomandi launþega sem ekki er hægt að sleppa undan. Leggið strax niður vinnu ef þið eruð launaseðlalaus og athugið hjá skattinum hvort staðgreiðsla hafi verið greidd.

En svo er bara að sjá hvað Hæstiréttur segir ef málið fer þá leiðina...


BMW.

Tek hér með allt aftur sem ég hef sagt um BMW. Set hins vegar spurningamerki við AUDI.

Trukkamótmæli.

Mitt innlegg í ágæt mótmæli síðastliðna daga er að þvinga olíufélögin til að LÆKKA verð þegar gengi eða heimsmarkaðsverð gefa tilefni til LÆKKUNAR. Við Íslendingar ættum ekki að vera í vandræðum með að stífla aðgengi að hverri einustu bensínstöð á landinu með smá samstilltu átaki. Nú þarf einhver að fylgjast vel með og kippa í réttu spottana svo við hin getum mætt út að næstu bensínafgreiðslu þegar t.d. gengið réttir sig af næst. GRRrrrrrrr þetta er rétt að byrja...

Ritstífla.

Er búinn að vera alveg stjarfur að fylgjast með genginu, vaxtahækkunum Dabba kóngs og eldsneytisverðshækkunum. Það virðist vera að í hvert skipti sem trukkabílstjórarnir mótmæla háu eldsneytisverðinu þá er tækifærið notað til að lauma nokkrum krónum ofan á lítraverðið. Ég hef nú samt verið bara þokkalega spenntur vegna gengisbreytinga undanfarinna daga ég nefnilega stofnaði gjaldeyrisreikning fyrir nokkrum vikum og hef undanfarna daga grætt í fyrsta skiptið á ævinni á svona hræringum. 40 evrurnar sem ég lagði inn samsvöruðu 4000 krónum þegar ég lagði þær inn en í gær þegar ég ætlaði að innleysa hagnaðinn samsvöruðu 40 Evrurnar 4903 krónum. Það er að vísu ekki hægt að innleysa þetta á kvöldin og um helgar svo sennilega verður allt önnur staða þegar ég man næst eftir því að skipta yfir í Íslensku ylhýru krónurnar okkar. Dabbi Kóngur stýrir neysluvenjum almúgans með mikilli festu úr konungshöllinni sinni og svarar árásum Golíats á efnahagskerfið af mikilli hörku með síauknum álögum á sauðsvartan almúgann sem fattar ekkert í sinn haus hvort eð er. Það styttist í mestu launajöfnun íslandssögunnar þegar tugmilljóna og jafnvel milljarða innistæður auðmannanna nýríku breytast í milljónirnar 3 sem ríkið ábyrgist. Hvort það verði á þessu ári eða síðar er ekki gott að segja en það mun fara eftir úrslitum forsetakosninganna í Bandaríkjunum segja mér fróðir menn en 2% hækkun á launum er bara hálf sagan ef engin eru hlutabréfin til að tapa milljónum á.

Ég er á förum til fjarlægra landa....

Ég er á förum til fjarlægra landa
finna þar fallegar konur og vín.

 Kann einhver að botna svona?

Einn farþeginn söng þetta aftur og aftur hástöfum alla leiðina úr Kópavogi til Hafnarfjarðar og kvartaði reglulega yfir því að kunna ekki meira af þessu skemmtilega lagi.


Fyrirmyndarfarþegar.

Farþegarnir í nótt voru allir sem einn til fyrirmyndar og sá sem ég keyrði seinast heim spilaði á munnhörpu allan tímann. Blátt lítið blóm eitt er, Vorkvöld í Reykjavík, Svífur yfir Esjunni og fleira og fleira í þessum dúr er ég kominn með á heilann og allt í munnhörpu útsetningu. Svona var þetta alltaf í gamla daga en nútíminn kemur með nýtt fólk og nýja siði... Sem minnir mig á það. Aðalskvísurnar í bænum eru flúnar aðalskvísustaðina í bænum, ...ástæða.... Nýja fólkið hefur allt öðruvísi siði en aðalskvísurnar geta sætt sig við. Hvar eru t.d. konur með kosningarétt?


Háskakerrur.

Keyri mikið þarna um og yfirleitt eru þetta rándýrir bílar með spól- og skrikvörn sem maður sér tvist og bast fyrir utan veg. Fyrr skulu þeir dauðir liggja virðist vera en að keyra þessi ofmetnu milljónatæki eftir aðstæðum. Hvernig væri að nota möguleika augnanna, keyra eftir aðstæðum og hætta svo að kenna veginum og vegaframkvæmdunum um öll þessi slys.
mbl.is Þrjú umferðarslys á Suðurnesjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klesstir og ónýtir BMW -ar.

Er þetta ekki óþarfi. Eru ekki BMW -arnir og Imrezurnar með stóru spoilerana að verða búnir. Ég keyri mikið á nóttunni um helgar og fer oft Reykjanesbrautina til Kef og maður sér þessa dýru bíla eins og hráviði hingað og þangað fyrir utan veg eða vafða utanum ljósastaura. Ekkert skrýtið hvað bílatryggingarnarnar hafa hækkað mikið undanfarin ár. Væri ekki réttast að tryggingafélögin fengju hraðasektirnar til sín svo hægt væri að lækka tryggingar hins almenna borgara sem fer eftir umferðarlögunum?
mbl.is Ómerkt bifreið með myndavélabúnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óheppni/heppni mánaðarins.

Maður sofnaði í leigubílnum hjá mér um helgina. Það var sama hvað ég öskraði í eyrun á honum og hristi hann til, hann bara vildi ekki vakna og ákvað ég að fá aðstoð lögreglunnar við að ná karlgarminum út úr bílnum sem var mjög auðsótt mál. 3 fílelfdir lögregluþjónar voru ekki lengi að redda manninum út úr bílnum og buðu honum ókeypis fylgd heim en þegar kom að því að gera upp leigubílinn byrjaði karlinn einhvern leikaraskap með VISA-kortið sem endaði að lokum með því að einn lögreglumaðurinn sótti það aftur í vasa mannsins. Ekki vildi betur til en að fullur poki af hvítu dularfullu dufti fylgdi óvart með kortinu. Maðurinn fékk í kaupbæti ókeypis gistingu á Hverfisteinium. 

Til hamingju Loðna.

Auðvitað þýðir ekkert að banna fiskveiðar þó einhverjir byggingaverktakar hafi byggt allt of margar íbúðir á SV-horninu.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Skumur.blog.is

Höfundur

Björgvin Kristinsson
Björgvin Kristinsson

Skrifin á þessari síðu eru ekkert endilega lýsandi fyrir skoðun undirritaðs, allt eins gæti verið um að ræða drög að nýrri vísindaskáldsögu. Tilheyri enda hægri grænum sem eru ekki til í alvörunni.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Spurt er

Ætti að sæma ríkisstjórnina fálkaorðu fyrir góð störf í þágu lands og þjóðar?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

189 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband